|
|
22.04.2008 09:43:46 / gunna75
Já er farin að blogga á myspeisinu.....
hætt í bili hérna...
»
15.04.2008 22:27:51 / gunna75
Nú fer ég að hætta með þessa síðu.....held það kíki enginn inn á þetta drasl. Síðasta færslan. Maggi minn er búinn að vera veikur í nokkra daga með bullandi hita og kvef, María Margrét er alveg að meika það í tanntöku, alveg að fríka út á þessu greyjið barnið, ég stíla hana núna á hverju kvöldi greyjið. alveg hrikalegt hvernig þetta fer í hana greyjið.  Karlrassgatið mitt lenti í árekstri í morgun á meðan konan hans sönglaði til vinnu þá reyndi hann greyjið í sjokki að hringja og hringja í mig en SLÖKKT á símanum..meira bullið, allavega hann keyrði aftan á, vinnubíllinn ónýtur að framan. En hann meiddist lítillega í baki.  Ég tróð mér í stjórn ÍA körfuboltan, það var aðalfundur í kvöld og viti menn þegar stressið kemur upp í mér þá fer mín að reita af séer brandarana...alveg eins og fífl. En hinum meðlimum til mikillar ánægju hehhheheh. Annars ætla ég að halda áfram bloggi á myspeisinu. adios. GK
»
11.04.2008 10:05:01 / gunna75
Next Life" by Woody Allen
In my next life I want to live my life backwards. You start out dead and get that out of the way. Then you wake up in an old people's home feeling better every day. You get kicked out for being too healthy, go collect your pension, and then when you start work, you get a gold watch and a party on your first day. You work for 40 years until you're young enough to enjoy your retirement. You party, drink alcohol, and are generally promiscuous, then you are ready for high school. You then go to primary school, you become a kid, you play. You have no responsibilities, you become a baby until you are born. And then you spend your last 9 months floating in luxurious spa-like conditions with central heating and room service on tap, larger quarters every day and then Voila! You finish off as an orgasm! I rest my case.
»
10.04.2008 21:12:15 / gunna75
Sól, snjór, rigning, sól....
Já í fyrradag var sól svo í gær var snjór og klaki og í dag var sumarveður...HVAÐ ÉR Í GANGI.......... Allavega ég fór í dag og keypti sumargjafirnar handa yngstu skrímslunum, Hlaupahjól handa magga og Hello Kitty sandkassasett handa kisusjúku dóttur minni, veit ekki enn hvað ég kaupi handa elsta syninum....hann er á svo erfiðum aldri maður fjúffffffff..... Það voru tónleikar í dag hjá magnúsi í tónlistarskólanum hérna, deildin hans á leikskólanum var að syngja, oohhh ég var svo stolt af syninum mínum.... hann var svo alvarlegur, söng af lífsins kröftum, ég var svo hrædd um að hann færi að láta eitthvað kjánalega, bora í nefið eða eitthvað álíka. 
jæja adios
»
06.04.2008 20:18:23 / gunna75
18 ára Afmælisdagur Rögnu Sifjar. Helgin er búin að vera alveg ljómandi fín, við mæðgur eyddum föstudeginum í smáralindinni með Ninnu sys, aðeins verslað.  Litla kisa kom til okkar á föstudagskv. Laugardagurinn fór nú bara í þrif og barnastúss, Flekkudals parið kíkti til okkar í smá hvítvínssmökkun, franska línu sem við erum að fara að flytja inn, VERY GOOD...... Þórey kom svo í kluk´kutíma á meðan við gamla fólkið kíktum á Mörkina og það var nú ekki staldrað lengi, þetta r nú meiri búllan....jedúddamía.....það var skellt í sig og tekið á sprettin heim, án gríns ég hljóp heim á háhæluðum skóm, kallin með rauðaflíshúfu sem við sáum á götunni, OKKUR VAR SVO KALT..... við höfum áræðanlega litið vel út hlauðandi vesturgötuna í fína dressinu.... enda Þórey sprakk úr hlátri þegar við komum másandi og blásandi inn....úffffff við vorum bókstaflega frosin. Well sunnudagurinn fór í leti nema við fórum í afmæli til Rögnu Sifjar, í nýju íbúðinni, sem er alveg rosalega sæt. björt og falleg. Við tróðum í okkur geggjuðum kökum. Svo var nú bara komið við á Dominos á leiðinni heim, og allir í leti. jæja over & out
»
03.04.2008 19:15:04 / gunna75
Eigum við að ræða það hvað ég er að mygla á þessu veikinda stússi.... fæ smá pásu núna þökk sé ávaxtakörfunni...María er stjörf Ég er búinn að þvo, þrífa, ryksuga,brjóta saman,skeina,þrífa upp ælu, þvo heita pottin, skrúbba gluggana,þvo pallinn, skeina meira.... JEMINNNNN......ég þarf að fara að komast út á meðal almennings....Gaman fyrir karlrassgatið að koma heim á kvöldin til úrillu eiginkonunnar með svitafýlu á við kjarnorkuskít....andsk....jæja nóg um það. Bensínið lækkaði í gær,,,,GAMAN Ég fæ tvo gesti um helgina, litlu kisu hnnar Tony og Enzito hennar Helgu systir, það verður FJÖR á þessum bæ....enda er sæmi búinn að pakka niður, þurfti skyndilega að vera á fundi alla helgina....ahhaha segji svona, við höfum gaman að þessu. jæja best að fara að koma þessum gríslingum mínum í rúm. hin þreytta og myglaða GK
»
02.04.2008 16:06:32 / gunna75
Það var ansi gaman hjá flest öllum í gær 1 apríl ofcourse... Nonni bróðir reyndi að plata mig en það gekk nú lítið, hann sendi mér sms um að hann og Geira væru að verða foreldrar, en það tókst ekki hjá þeim að plata mig. Ég hins vegar sendi sms á fameliuna um að vinsamlega hringja í ákveðið númer sem var Hommalínan....ahhahah mér fannst það alveg innilega fyndið. Annars erum við mæðgur búnar að vera heima í 2 daga, lillan mín með upp og niður pestina. Ekki gaman.  Eitthvað stendur ræktin á sér, hef ekki enn komist, og það er EKKI gott....kílóin eru alveg að fara að koma aftur.  alveg glatað. Langar að vera stína stöng þegar við förum út. En nóg um það væl, ég verð þá kannski bara veidd af Greenpease...  Eins gott að liggja ekki flatmaga á ströndinni. úfffff..... Jæja farinn að elda....
»
31.03.2008 10:13:24 / gunna75
já það er sko komin mánudagur...úff þetta er svo rosalega fljótt að líða, ég er búinn að vera í panikk kasti yfir því að hún rólega dóttir mín er ekki farin að labba 16 mánaða, jámm... ég er búinn að æfa hana aðeins en henni finnst bara voðalega gott að sitja á rassinum sínum. En ég ákvað nú að hringja í lækni og á pantaðan tíma fyrir hana núna á næstu vikum, en þá ákvað hún litla mín að vilja labba núna, og það eina sem við gerum þessa dagana er að láta hana labba, og hún tekur miklum framförum..jibbý, þannig að kannski verður hún farin að labba fyrir spánarferðina. Mangi langi er alltaf sprækur, hættur að vilja flytja til íslands, er loksins orðin sáttur við sveitina komin tími líka til  . JD er hress að vanda, með unglingaveikina miklu, tónlistin í botni og dansar við það. Hann er fastur á því að verða rappari og NBA leikmaður svona aukalega  . Áfengisbransin gengur alveg ótrúlega vel, þökk sé áfengisþyrstum Íslendingum...  Við erum alltaf að bæta í safnið, komin með meira úrval af allskyns tegundum. jæja Adios
»
19.03.2008 10:24:15 / gunna75
Ég er alveg komin með nóg af þessu veikindaskýji sem hefur svifið yfir Vesturgötuna, Börnin eru komin í sína daglegu rútínu, ég ný staðin upp úr veikindum sjálf, með gubbuna takk fyrir....það verður allavega ekki fengið sér lakkrís næstu vikur...jukkkk.. En nóg um það, Óli litli bró er að fermast á fimmtudaginn, já sá yngsti. 20 ár á milli okkar...djí,,,,hvað maður er orðin gamall.  Ég hef ekkert farið í ræktina núna í að verða 2 vikur algjörlega glatað, en hef nú samt passað mataræðið, hef nú reyndar ekki haft lyst á mat. Ég fékk alveg óvænta heimsókn í gær, gömul vinkona mín úr Olís bankaði uppá með prinsinn sinn, oohh það var ekkert smá gaman að hitta hana, 7 ár síðan við hittumst síðast og alveg eins og það hafi gerst í gær. Gaman að´fá svona óvæntar heimsóknir.  Jæja Gleðilega páska.
»
13.03.2008 09:17:10 / gunna75
ég ákvað að halda mig við þetta blogg, þar sem maður þarf að greiða fyrir 123.is ég er nú ekki það skemmtileg að ég fari að borga fyrir bloggbullið...nei takk En allavega Lalla mín á afmæli í dag, alveg orðin 4 ára.        Síðasta helgi fór í körfuboltamót hjá syninum elsta, það var alveg rosalega gaman, við Flekkudalsfrú tókum alla liðsmenn og eyddum allri helginni í Keflavík á Samkaupsmótinu með þeim. Þeir stóðu sig alveg ótrúlega vel unnu 3 leiki af 5 ÁRFAM ÍA.... Þegar við komum heim þá var JD orðin lasin, ég endaði með hann á bæjarvaktinni, þá er hann komin með vírus, útbrot útum allt og bullandi hita, nú er Fimmtudagur og hann er enn lasin. Magnús fékk æluna í fyrrinótt, við hjónin vöknuðum á 20 mín fresti að sinna barninu, sem var þá búinn að æla á pabba sinn, og koddan minn NICE   Prinsessan mín er búinn að vera heima líka, veikindi hjá Erlu, Mæsan mín var nú virkilega farin að sakna þeirra, hún fóor við útihurðina á hverjum degi með húfu eða skó, og sagði bara jæja krakkar....alvegjörlega komin með ógeð af vistmönnum hér. Nú styttist í spánarferðina með Flekkudalsliðinu, ooohhhhh hvað ég ætla að FÁ MÉR SANGRÍA.......... get ekk beðið. jæja farin að vinna.
»
07.02.2008 17:34:43 / gunna75
»
13.01.2008 16:54:50 / gunna75
Jæja helgin var bara fín, rólegheit á föstudagskvöldið. Fór með strákana mína til tannsa á föstudag, mamman var náttúrulega eins og óhemja og NB það var bara verið að hreinsa í mér tennurnar, Magga fannst nú ekki að ég ætti að fá verðlaun, var nú hálf hissa á móður sinni. Föstudagur var bara rólegur, ég og strákarnir skutumst á Bifröst um kvöldið og sóttum Evu M. keyptum okkur fullt af nammi á leiðinni heim, krakkarnir í sykursjokki þegar heim var komið og hlupu upp og niður allar hæðir og hlóu eins og tröll. Tók mig nú einhvern tíma að vekja unglingana á laugardag, þau voru voðalega þreytt, held það séu nú bara hormónmar púfffffff.... Tengdó komu og borðuðu með okkur, þvílíkar kræsingar frá Dóminós, flekkudalsfólkið kíkti við og svo kom Tony. Þannig að nóg var um gestagang í gær. Mér sýnist ég þurfa að breyta eitthvað af þessum tenglum hérna fyrir neðan, þetta er allt í vanrækslu.  En jæja betra en ekkert... over and out
»
09.01.2008 10:48:27 / gunna75
Vá það er langt síðan það var bloggað á mínum bæ. Smá uppdeit: Við erum ennþá á skaganum: María Margrét er byrjuð hjá Erlu dagmömmu, Maggi á leikskólanum og Jd í skóla. Við hjónin erum að vinna í fyrirtækinu sem er bara skemmtilegt, og gengur alveg rosalega vel. Ég dreif hana Erlu með mér að labba í gærkvöldi og maður lifandi við löbbuðum í 1 1/2 tíma, sem sagt allan skagann, og fyrir manneskju sem hefur akkurat EKKERT þol, þá úúffff....ég er með þvílíkar harðsperrur í dag. jæja það er ennþá bloggstífla. adios
»
16.11.2007 06:56:15 / gunna75
Vantar þig jólasvein heim á aðfangadag, hafðu samabnd Jólasveinaþjónustan Jólasveinarnir hefur áratugareynslu í að skemmta landsmönnum um jólin og segja menn að þar sé að finna bestu og skemmtilegustu jólasveina landsins, enda hefur hún séð um skemmtanir fyrir stærstu fyrirtæki landsins ár eftir ár. Jólasveinaþjónustan Jólasveinarnir hefur einnig ráðist í útgáfu og gaf út myndina Jólasveinarnir – Syngja og dansa fyrir Jólin 2006 sem fékk ótrúlegar viðtökur. Jólasveinaþjónustan Jólasveinarnir er þó ekki eingöngu jólasveinaþjónusta heldur veitir hún bæði fyrirtækjum og starfsmannafélögum heildarlausn í skipulagningu á jólatréskemmtunum, s.s. sal, sælgæti, tónlistarmenn, skemmtikrafta og auðvitað jólasveinana sjálfa
»
06.07.2007 22:43:40 / gunna75
Well well..
Langt síðan það hefur verið bloggað á mínum bæ.
short updates:
Við familian erum flutt á Skagann, já erum "SKAGAMENN" reyndar
er Magnús fæddur skagamaður, fæddist á sjúkrahúsinu hérna. Anyways,
við ákváðum að kaupa okkur hérna einbýlishús og erum alveg rosalega
ánægð hérna, enda ekki annað hægt. Strákarnir eru mjög sáttir, Jón
Davíð er búinn að eignast vini hérna og hann varla sést krakkinn.
Magnús er ekki eins sáttur, hann vill flytja aftur til íslands (
grafarholtið) en það kemur hjá kallgreyjinu, hann byrjar í
leikskóla núna í ágúst, þá kemst hann í rútínu. María Margrét eða
Frú Bóla eins og hún er ´kölluð hérna heimafyrir er alltaf jafn
róleg og góð. Hún sem sagt fékk hlaupabóluna um daginn, og fékk
hana það slæma að sveitalæknirinn hérna vissi ekki sitt rjúkandi
ráð þegar hann sá barnið, hann klóraði sér bak og fyrir og hummaði,
svo endaði með því að hann sagði " JÁ hún er semsagt með einhver
afbrigði af örugglega hlaupabólu" HA segji ég HVAÐ MEINARÐU ???? Já
ég myndi fara með hana í bæinn og horfði á barnið eins og hún væri
með fuglaveikina. Ég kem barninu að hjá lækni og hann bara horfði á
hana og sagði hún er með MJÖG slæma hlaupabólu...hummm....okey. en
hún er að jafna sig krakkagreyjið, svoldið bólótt. það liggur við
að ég meiki barnið í framan áður en við förum í búð, því fólk
glápir á hana..ehheheh
Það var gerð önnur tilraun að fá hund hingað heim
ÚFFFFFFFFFFFFFFFF hvað ég nennti þessu ekki. honum var
skilað eftir 2 vikur, hundgreyjið. Það eru örugglega myndir af
okkur hjá öllum hundaeigendum (ÞESSI SKILA EFTIR VIKU) skemmtilegt
á meðan því stóð.
jæja nóg í bili..
adios
GK hin þreytta
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|